Sleppa í efni

Herjólfsgufan ehf. · 610225-0200

Skilmálar

Herjólfsgufan vill taka vel á móti öllum sínum gestum og að allt sé skýrt þegar bókað er. Með því að bóka og koma til okkar samþykkir þú þessa skilmála. Vakni einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband: herjolfsgufan@gmail.com

1.

Almennir skilmálar

Þessir skilmálar gilda um allar bókanir hjá Herjólfsgufunni ehf. Með því að bóka tíma samþykkir þú þessa skilmála.

2.

Bókanir og greiðslur

Miðað er við að allar bókanir séu framkvæmdar í gegnum heimasíðuna okkar eða tölvupóst og samfélagsmiðla fyrir einkagufur. Öll gjöld eru í íslenskum krónum (ISK) og greidd fyrirfram með korti, öðrum greiðslumáta sem Teya bíður upp á eða með millifærslu.

3.

Afbókun og endurgreiðsla

  • Þeir sem bóka eiga rétt á fullri endurgreiðslu ef afbókun er gerð með að minnsta kosti 24 klst. fyrirvara.
  • Afbókanir sem eru gerðar með skemmri fyrirvara en 24 klst. fást ekki endurgreiddar.
  • Herjólfsgufan ehf. áskilur sér rétt til að fella niður auglýstar gufustundir vegna veðurs eða annara ástæðna. Viðskiptavinir sem bókað hafa eiga rétt á endurgreiðslu en einnig er valkostur að nýta greiðslu fyrir aðra bókun.
4.

Ábyrgð og öryggi

  • Herjólfsgufan ehf. ber ekki ábyrgð á slysum eða meiðslum sem kunna að verða á meðan notkun Herjólfsgufunar stendur, hvorki í eða við gufuhúsið eða í sjónum.
  • Gestir bera alfarið ábyrgð á sjálfum sér og að fara eftir leiðbeiningum og umgengisreglum.
  • Herjólfsgufan ehf. ber ekki ábyrgð á persónulegum munum sem kunna að týnast, glatast eða skemmast.
5.

Skilmálabreytingar

Herjólfsgufan áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Uppfærðir skilmálar verða birtir á vefsíðunni.

6.

Persónuvernd

Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

7.

Lögsaga og varnarþing

Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Umgengisreglur

Sjá Umgengisreglur fyrir ítarlegar reglur um hegðun og notkun á svæðinu.