Við erum Herjólfsgufan
Um okkur
Herjólfsgufan opnaði sem „pop-up" gufa á Herjólfsgötunni í Hafnarfirði milli jóla og nýárs árið 2024. Um samstarfsverkefni Trefja, Heilsubæjar Hafnarfjarðar og okkar sem stöndum nú að Herjólfsgufunni var að ræða. Aðsóknin þessa einu viku var framar okkar björtustu vonum og augljóst að Hafnfirðingar og aðrir gestir tóku þjónustunni fagnandi.
Við ákváðum því að formlega stofna Herjólfsgufuna og panta stærra hús sem keypt var af Trefjum — meðal annars var sérpantaður extra kröftugur rafmagnsofn til kyndingar. Við völdum rafmagnsofn til að forðast reyk og lykt sem gæti haft áhrif á nágranna okkar á Herjólfsgötunni.
Herjólfsgufan opnaði í núverandi mynd þann 23. maí 2025 og erum við afar þakklát fyrir góðar móttökur.
Teymið
Silja
Silja er lyfjafræðingur og jógakennari með áhuga á áfallamiðaðri nálgun, yoga nidra og öndun. Hún er með diplómu á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og er sem stendur í meistaranámi í Listir og Velferð við Listaháskóla Íslands. Hún er einn eigenda Velferðalags sem stendur fyrir námskeiðum og fræðslu um leiðir til að efla vellíðan. Sauna- og sjóböð og allt það sem leiddar gufustundir bjóða upp á smellpassa inn í þessa sýn.
Gylfi
Gylfi er slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og starfar sem slíkur hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins. Einnig er hann með MA gráðu í félagsráðgjöf og vinnur sem félagsráðgjafi í hjáverkum.
Guðný
Guðný er fæðinga- og kvensjúkdómalæknir með doktorspróf í læknisvísindum sem bjó um lengri tíma í Svíþjóð þar sem hún kynntist fyrst gufu og sjósundsmenningu. Hefur mikinn áhuga á jákvæðum heilsufarsáhrifum heitrar gufu og kælingar í sjó. Heldur reglulega „Beats Sauna" þar sem hugmyndin er að takturinn aukist í hverri lotu með hækkandi púls og hita.
Hjalti
Hjalti er lyfjafræðingur og með doktorspróf í læknisvísindum með mikinn áhuga á heilsu, íþróttum og vísindum. Hann hefur sökkt sér í öndunarfræði og stundað sjóböð og gufur í mörg ár. Honum finnst sérstaklega áhugavert hvernig leiddar gufustundir bjóða upp á fullkomnar aðstæður fyrir endurstillingu á taugakerfinu. Tónlistin er gífurlega mikilvægur hluti — hann er mikið fyrir soul og hip hop.
Hafa samband
herjolfsgufan@gmail.com